Samtímaljósmyndun frá ýmsum sjónarhornum.

Fegurðin er ekki skraut er fyrsta bók forlagsins Fagurskinnu. Í bókinni Fegurðin er ekki skraut fjalla átta listfræðingar, sýningastjórar og aðrir fræðimenn um íslenska samtímaljósmyndun út frá ólíkum sjónarhornum og setja í samhengi við alþjóðlega strauma í ljósmyndun, myndlist, heimspeki og listasögu. Í bókinni er jafnframt að finna fjölda ljósmynda eftir marga helstu ljósmyndara landsins. Í tilkynningu frá Fagurskinnu vegna útgáfunnar segir þetta: Samtímaljósmyndun er mikilvægur og áhrifaríkur þáttur í íslenskum myndlistarheimi. Ljósmyndun sem hefur það að markmiði að vekja til umhugsunar, hreyfa við, breyta, rugla okkur í ríminu eða endurspegla gildismat og sýn okkar á heiminn, miðla hugmyndum og jafnvel afstöðu til lífsins og samfélagsins sem við erum hluti af. Ritstjórar eru Sigrún Alba Sigurðardóttir, menningarfræðingur og dósent við Listaháskóla Íslands, og Æsa Sigurjónsdóttir, listfræðingur og dósent við Háskóla Íslands. Bókin er gefin út í samvinnu við FÍSL, Félag íslenskra samtímaljósmyndara.Fegurðin er ekki skraut er 328 blaðsíður að lengd. Eyjólfur Jónsson hannaði innsíður og braut bókina um og Studio Studio sá um kápuhönnun. Bókin er prentuð í Litháen. Fagurskinna er nýtt útgáfumerki á vegum Bjarts og Veraldar og er Fegurðin er ekki skraut fyrsta bókin sem kemur út á vegum Fagurskinnu.
Í tilefni af útgáfu bókarinnar verður sett upp sýning á verkum íslenskra samtímaljósmyndara í Ljósmyndasafni Reykjavíkur. Nefnist hún Fjarski og nánd. Er sýningin unnin í samstarfi við Félag íslenskra samtímaljósmyndara. Sýningin stendur til 10. janúar 2021 og sýningastjóri er Æsa Sigurjónsdóttir.
Sýnendur á sýningunni Fjarski og nánd:
Agnieszka Sosnowska
Bára Kristinsdóttir
Bjargey Ólafsdóttir
Bragi Þór Jósefsson
Claudia Hausfeld
Daníel Þorkell Magnússon
Einar Falur Ingólfsson
Guðmundur Ingólfsson
Gunnhildur Hauksdóttir
Hallgerður Hallgrímsdóttir
Katrín Elvarsdóttir
Kristinn Ingvarsson
Kristleifur Björnsson
Orri
Pétur Thomsen
Spessi