LJÓSMYNDUN 1 – ljósmyndanámskeið fyrir byrjendur.

Á námskeiðinu eru kennd undirstöðuatriði í ljósmyndun; allt það sem þarf til að byrja að skapa eigin myndir.

Kennt verður þrjú kvöld frá kl. 18.00 – kl. 21.00.

Dagsetningar: 31 janúar, 2. og 7. febrúar 2022

Kennt verður í húsnæði Ljósmyndaskólans að Hólmaslóð 6, Reykjavík. Þátttakendur þurfa að hafa undir höndum myndavél sem hefur stillanlegt ljóop og hraða.

Hámarksfjöldi þátttakenda á hverju námskeiði eru 10 manns.

Námskeiðsgjald er kr. 36.000

Á námskeiðinu verður meðal annars farið þessa þætti:

  • Myndavélar: Skoðaðar mismunandi tegundir stafrænna myndavéla, kostir þeirra og gallar.
  • Grunnstillingar: Kennt verður  á ljósop, hraða og ljósnæmi.
  • Linsur: Nemendur læra að þekkja mismunandi linsur og geta valið hverskonar linsa hentar þeirra nálgun á ljósmyndun.
  • Dýptarskerpa: Hvernig  nýtir ljósmyndari  ljósop til að stjórna dýptarskerpu ljósmynda.
  • Myndbygging:   Farið er í helstu grundvallaratriði mynduppbyggingar og skoðað hvernig uppbygging myndflatar skiptir máli við myndsköpun.

Fyrirkomulag kennslu: Kennt verður með fyrirlestrum en kennari aðstoðar einnig hvern þátttakanda á námskeiðinu varðandi eigin myndavél og stillingar.
Þátttakendur námskeiðsins fá verkefni með sér heim sem þeir vinna á milli kennslukvölda. Farið er yfir þau í kennslustundum.

Námsefni: Nemendur fá afhentar útprentaðar fyrirlestraskyggnur. Kennari á námskeiðinu er  Ellen Inga Hannesdóttir   Hún hefur langa reynslu af kennslu á ljósmyndanámskeiðum fyrir byrjendur.

Hægt er að fá frekari upplýsingar um námskeiðið með því að skrifa póst á ljosmyndaskolinn@ljosmyndaskolinn.is eða að hringja í síma 5620623.

Athugið: Mörg stéttarfélög taka þátt í greiðslu námskeiðsgjalda fyrir félagsmenn sína.

Sótt er um námskeiðið undir flipanum Námskeið á heimasíðu skólans

Ljósmyndaskólinn
Opnunartími skrifstofu
Virka daga 09:00 – 16:00
Lokað er í júlí og á almennum frídögum
Gagnlegar upplýsingar
Önnur gögn
Jafnréttisstefna
Móttökuáætlun
Áætlun gegn einelti, ofbeldi og áreitni
Viðbrögð við vá
Rýmingaráætlun
Persónuverndarstefna