Margeir Steinar Ingólfsson
Ráðgjafi
www.hugsmidjan.is/margeir@hugsmidjan.is
Kennir: Að lifa af í listheiminum.
Margeir er stjórnarformaður og ráðgjafi hjá Hugsmiðjunni, fyrirtæki sem sérhæfir sig í þróun stafrænna lausna og markaðssetningu á vefnum. Margeir hefur á vegum Hugsmiðjunnar haldið námskeið fyrir einstaklinga og fyrirtæki í markaðssetningu og samfélagsmiðlun. Margeiri er ýmislegt fleira til lista lagt, en auk þess að vinna við ráðgjöf og námskeiðahald, semur hann tónlist og er vinsæll plötusnúður ásamt því að skipuleggja ýmis konar viðburði og tónlistarhátíðir.