Námsbraut í skapandi ljósmyndun 1

720 námsstundir. Fyrirlestrar/málstofa, sýnikennsla, einkatímar, hóptímar og sjálfstæð verkefnavinna undir handleiðslu. 387 stundir. Eigin vinna 333 stundir.

Helstu námsþættir og áherslur

Farið er í þætti er varða myndavélina sem verkfæri ljósmyndarans, s.s. ljósop og hraða og önnur tæknileg atriði varðandi myndatökur. Kennd eru grundvallaratriði mynduppbyggingar og notkun ljóss við myndsköpun. Nemendur læra að vinna í myndveri (stúdíói) og meðhöndlun tilheyrandi tækjabúnaðar. Þeir læra einnig framköllun á svarthvítum filmum, stækkun og prentun af filmum. Nemendur læra grunndvallarþætti stafrænnar ljósmyndunar, flokkun og skipulag myndasafns síns og helstu þætti stafrænnar myndvinnslu. Þeir læra að vinna myndir fyrir prentun og fá kennslu í því að prenta á prentara skólans. Nemendur eru kynntir fyrir grunnhugtökum í hugmyndavinnu og hagnýtum atriðum varðandi ritun á texta, heimildanotkun og hvernig beita skal heimildatilvísunum. Farið er í sögu ljósmyndunar frá upphafi og fram yfir miðja 20. öld, í íslensku og alþjóðlegu samhengi, með tilliti til tengsla við hugmyndastrauma, liststefnur, tækniþróun og samfélagshræringar.

Í áföngunum öllum er áhersla á að nemendur leysi verkefni, kynni þau og setji í samhengi við kenningar, hugmyndir eða aðferðir. Nemendur eru hvattir til að þróa með sér þekkingu á mismunandi aðferðum við myndbyggingu og úrvinnslu verkefna og til þess að gera tilraunir með persónulega beitingu ljósmyndamiðilsins. Á önninni taka nemendur þátt í tveimur vinnustofum þar sem þeir vinna undir handleiðslu listafólks í afmarkaðan tíma.

Markmið í lok annar:

  • Að nemendur hafi lært að nota ljósmyndavélina og nýta eiginleika hennar.
  • Að nemendur hafi öðlast þekkingu og færni í grunnþáttum ljósmyndunar og geti beitt þeim við eigin vinnu og sköpun.
  • Að nemendur hafi náð tökum á vinnu í myndveri og umgengni við tæki og tól.
  • Að nemendur hafi lært klassíska/hefðbundna aðferð við framköllun á svarthvítum filmum og náð valdi á því að stækka ljósmyndir á pappír.
  • Að nemendur kunni skil á grunnþáttum stafrænnar myndvinnslu, flokkun og geymslu stafrænna ljósmynda, hafi þekkingu til að vinna myndir fyrir prentun og kunni á prentara skólans.
  • Að nemendur hafi fengið æfingu í að lesa ljós og átti sig á því hvernig unnt er að nýta það til mismunandi mynduppbyggingar og til að ná fram áhrifum í myndsköpun.
  • Að nemendur hafi náð tökum á aðferðum við hugmyndavinnu, hafi þjálfast í notkun slíkra vinnubragða og geti nýtt þekkinguna við undirbúning og útfærslu eigin verkefna.
  • Að nemendur hafi náð tökum á því að skrifa stutta ritgerð, að afla sér heimilda og að nota heimildatilvísanir.
  • Að nemendur kunni skil á helstu straumum og stefnum í ljósmyndasögu 19. aldar og fyrri hluta þeirrar 20. og tengslum ljósmyndunar við listheim og samfélagsþróun þess tímabils.
  • Að nemendur hafi hlotið innsýn í skapandi möguleika ljósmyndunar.
Áfangar

720 námsstundir. Fyrirlestrar/málstofa, vettvangsferðir, hóptímar, einkatímar og sjálfstæð verkefnavinna. 357 stundir. Sjálfstæð vinna, 363 stundir.

Helstu námsþættir og áherslur

Markmið annar er að nemendum aukist færni í flestum þeim grundvallarþáttum ljósmyndunar sem þegar hafa verið kynntir. Áfram er hnykkt á vinnubrögðum og skilningi á ólíkum úrlausnarefnum í stafrænni ljósmyndun og nemendur þjálfaðir í því að nýta möguleika tækninnar til að ná fram tilætluðum áhrifum við úrlausn ólíkra verkefna.

Lögð er áhersla á að kenna mismunandi aðferðir við vinnu í myndveri (stúdíói) og  að æfa enn frekar almenn vinnubrögð. Nemendur fá þjálfun í því að beita mismunandi tækni við lýsingu, glíma við flóknari lýsingaverkefni og markmiðið að þeir nái tökum á að nota mismunandi lýsingu í myndveri með ólíkum gerðum af ljósum og flössum.

Mikil áhersla er á frekari þjálfun í stafrænni ljósmyndun, vinnu með myndvinnsluforrit og að vinna myndir fyrir prentun. Nemendur læra að ganga frá ljósmyndum sínum til mismunandi tegundar prentunar og þurfa að þekkja litastjórnunarkerfi, myndvinnsluferli og helstu þætti prentferlisins.

Áhersla er á að nemendur hljóti frekari þjálfun í skapandi myrkraherbergisvinnu, sem og frágangi og uppsetningu á handprentuðum ljósmyndum.

Lögð er áhersla á aukið sjálfstæði nemenda í öllum þessum námsþáttum á þessari seinni önn námsbrautarinnar.

Nemendur halda áfram að tileinka sér aðferðir til að þróa og halda utan um hugmyndavinnu og eru krafðir um að nýta sér slíkt verklag í öllu námi við skólann. Þeir læra einnig mynduppbyggingu, skapandi beitingu myndmáls, táknfræði og túlkun myndmáls og fá þjálfun í greiningu og lestri myndverka. Fjallað er um ljósmyndina sem miðil í samhengi við sögu hugmyndaþróunar og stefnur og strauma í listasögu og einnig er nemendum kynnt ólík virkni mismunandi samfélagsmiðla og möguleikar þeirra til kynningar.

Í vinnustofum fá nemendur innsýn í ólíka nálgun á ljósmyndamiðilinn undir handleiðslu gestakennara sem allir eru starfandi ljósmyndarar/listamenn. Þar eru tekin fyrir margs konar verkefni sem tengjast listsköpun og nemendur fá innsýn í mikilvægt hlutverk ljósmyndarinnar í samtímalist.

Alla önnina er áhersla lögð á að hvetja nemendur til þess að nýta sér allar aðferðir og þekkingu til tjáningar á persónulegan máta og til að nálgast hvert verkefni með skapandi hugsun að leiðarljósi. Sömuleiðis er mikilvægi skipulagðra vinnubragða brýnt fyrir þeim.

Í lok annar gera nemendur verkefni sem samþættir alla námsþætti námsbrautarinnar. Það er jafnframt þjálfun í ferlinu „frá hugmynd til fullbúins verks“ þar sem hver nemandi vinnur eigið efni til sýningar en undir handleiðslu kennara.  Afraksturinn er sýndur á Uppskeruhátíð  skólans í maí.

Markmið í lok annar:

  • Að nemendur hafi hlotið þjálfun í skapandi myrkraherbergisvinnu. Kunni handbragðið við stækkun á fíber pappír, frágang, lagfæringar og uppsetningu á handstækkuðum ljósmyndum og geti unnið sjálfstætt að þessum þáttum.
  • Að nemendur séu færir um að beita mismunandi aðferðum við lýsingu ólíkra verkefna og beitingu mismunandi ljósgjafa við ólíkar aðstæður. Hafi náð góðu valdi á helstu tegundum ljósabúnaðar, geti blandað saman ólíkum ljósgjöfum og skapað mismunandi tegundir lýsinga og andrúmsloft sem henta ólíkum verkefnum og kunni að nota handflöss. Hafi tileinkað sér skipulögð vinnubrögð við myndatökur í myndveri og á vettvangi og geti unnið sjálfstætt að verkefnum.
  • Að nemendur hafi náð góðu valdi á stafrænni ljósmyndun, stafrænni myndvinnslu og notkun myndvinnsluforrits. Einnig að þeir hafi náð góðum tökum á prentun og hafi öðlast þekkingu á helstu þáttum mismunandi prentferlis. Að nemendur séu færir um að vinna sjálfstætt að úrlausn verkefna.
  • Að nemendur hafi almenna yfirsýn um þróun myndlistar. Kunni skil á tengslum ljósmyndarinnar við þá þróun og hafi hlotið innsýn í áhrifamátt ljósmyndarinnar í menningarlegu og sögulegu samhengi.
  • Að nemendur geti greint og fjallað um myndverk út frá sögulegu samhengi og hugmyndalegu inntaki.
  • Að nemendur hafi náð tökum á aðferðum til að þróa hugmyndir sínar og kynna þær.
  • Að nemendur hafi kynnst helstu möguleikum mismunandi samfélagsmiðla til kynningar. Að þeir hafi öðlast þjálfun í því að velja, vinna og birta eigið efni á nemendasvæði á heimasíðu skólans.
  • Að nemendur hafi kynnst ólíkum listamönnum, mismunandi hugmyndum, vinnubrögðum og aðferðum og aukið við skilning sinn á fjölþættri notkun ljósmyndamiðilsins til tjáningar og sköpunar. Hafi fengið innsýn í að ljósmyndamiðillinn er notaður á ólíka vegu í samtímamyndlist og að mismunandi fagurfræðileg og hugmyndafræðileg gildi geta legið að baki notkun ljósmyndar sem listmiðils.
  • Að nemendur hafi samþætt helstu áhersluþætti námsins fyrstu tvær annirnar og hafi undir handleiðslu farið í gegnum ferlið „frá hugmynd til fullbúins verks“. Afrakstur vinnunnar er til sýnis á Uppskeruhátíð skólans að vori.
Áfangar
Ljósmyndaskólinn
Opnunartími skrifstofu
Virka daga 09:00 – 16:00
Lokað er í júlí og á almennum frídögum
Gagnlegar upplýsingar
Önnur gögn
Jafnréttisstefna
Móttökuáætlun
Áætlun gegn einelti, ofbeldi og áreitni
Viðbrögð við vá
Rýmingaráætlun
Persónuverndarstefna