Að vinna með safn

Í janúar og fyrrihluta febrúar hafa nemendur Námsbrautar í skapandi ljósmyndun 2 unnið undir handleiðslu Berglindar Jónu Hlynsdóttur í áfanganum Að vinna með safn. Nemendur unnu með einhvers konar  safn ljósmynda sem þegar var til orðið. Þau leituðu víða fanga og sóttu efniviðinn meðal annars til bernsku sinnar eða í söfn ljósmynda og annars efnis úr fórum ættmenna.

Markmið áfangans er að kynna nemendum leiðir til að vinna verk úr safni ljósmynda sem þegar er til orðið. Nemendur fá þjálfun í að vinna með slíkt safn ljósmynda eða annars efnis og skoðað var hvernig slíkur efniviður getur leitt til ófyrirséðrar niðurstöðu. 

Í áfanganum kynntust nemendur ýmsum listamönnum sem vinna á þennan máta. Einnig voru skoðaðir staðir sem geyma safnkost  sem gæti verið uppspretta  efniviðs til að vinna með og má nefna sem dæmi Ljósmyndasafn Reykjavíkur og Borgarskjalasafn.

Að lokinni yfirferð í áfanganum höfðu nemendur sýningaropnun og buðu nánustu fjölskyldu og vinum að koma  í skólann og sjá afraksturinn af þeirri vinnu sem fram fór í áfanganum.

Hér má sjá nokkrar myndir frá yfirferð og opnun og eins og sjá má voru verkefni nemenda fjölbreytt og útfærslan einnig.

 

/sr.

Ljósmyndaskólinn
Opnunartími skrifstofu
Virka daga 09:00 – 16:00
Lokað er í júlí og á almennum frídögum
Gagnlegar upplýsingar
Önnur gögn
Jafnréttisstefna
Móttökuáætlun
Áætlun gegn einelti, ofbeldi og áreitni
Viðbrögð við vá
Rýmingaráætlun
Persónuverndarstefna