Þann 31. október hefst síðasta byrjendanámskeið þessa árs. Námskeiðin verða áfram í boði á vorönn.
Þessi námskeið hafa mælst vel fyrir og einróma fengið góða umsögn eins og endurspeglast í fyrirsögninni.
“Ótrúlega skemmtilegt námskeið, fræðandi hnitmiðað og praktískt. Mæli með þessu!” segir einn þátttakandi síðasta námskeiðs.
Námskeiðslýsing:
Ljósmyndanámskeið fyrir byrjendur.
Kennt verður þrjú kvöld, 31. okt., 2. nóv., og 7. nóv. frá kl. 18.00-21.00.
Á námskeiðinu eru kennd undirstöðuatriði í ljósmyndun; allt það sem þú þarft til að byrja að skapa þínar eigin myndir.
Kennt verður í húsnæði Ljósmyndaskólans að Hólmaslóð 6, Reykjavík.
Þátttakendur verða að hafa undir höndum eigin myndavél sem hefur stillanlegt ljósop og hraða.
Farið verður í eftirfarandi grundvallaratriði:
Myndavélar: Farið verður yfir mismunandi tegundir stafrænna myndavéla, kosti þeirra og galla.
Grunnstillingar: Kennt verður ýtarlega á ljósop, hraða og ljósnæmi.
Linsur: Nemendur læra að þekkja mismunandi linsur og geta valið hverskonar linsa hentar þeirra nálgun á ljósmyndun.
Dýptarskerpa: Skoðað verður og farið yfir hvernig ljósmyndari getur nýtt ljósopið til að stjórna dýptarskerpu ljósmynda.
Myndbygging: Farið verður í uppbyggingu myndflatar og leitast við að nemendur öðlist skilning á grunnhugmyndum mynduppbyggingar.
Fyrirkomulag kennslu: Kennt verður með fyrirlestrum en kennarar munu einnig aðstoða hvern þátttakanda á námskeiðinu með þær myndavélar sem þeir nota og stillingar á þeim.
Þátttakendur fá verkefni með sér heim sem þeir vinna og verður svo farið yfir þau í tímum.
Námsefni: Nemendur fá afhentar útprentaðar fyrirlestrarskyggnur.
Leiðbeinendur eru Þórunn Birna Þorvaldsdóttir og Ellen Inga Hannesdóttir.
Nánar má fræðast um þær á heimasíðum þeirra: Þórunn og Ellen
Hámarksfjöldi þátttakenda er 15 en lágmarksfjöldi 10.
Námskeiðið kostar 29.000.- kr, bent er á að mögulegt er að kaupa gjafakort hjá Ljósmyndaskólanum sem hægt er að nota sem greiðslu upp í ýmis námskeið.
Til að sækja um námskeiðið, kaupa gjafakort eða til að fá frekari upplýsingar er hægt að skrifa tölvupóst á netfangið info@ljosmyndaskolinn.is eða að hringja í síma 5620623.